Sagan okkar / Our story

MAR Seafood

Fishing boats in an Icelandic harbour

Velkomin á Mar

Hugmyndin á bak við Mar er einföld – að setja íslenskan fisk og sjávarfang í öndvegi og sækja innblástur í réttina sem ég ólst upp við.

Margir réttanna á matseðlinum eiga sér langa sögu á íslenskum heimilum, en við höfum fært suma rétti til nútímans. Þorskgellur og steinbítskinnar voru til dæmis oft einfaldlega soðnar með kartöflum. Í dag viljum við sýna hversu frábært hráefni þessir vöðvar eru – og um leið nýta fiskinn eins vel og hægt er.

Humarsúpa Tomma Þórodds gerði garðinn frægan í lok síðustu aldar á veitingastaðnum Betri stofan á Selfossi.

Gratineraður fiskur með eplum og karrýsósu var vinsæll ofnréttur á íslenskum heimilum fyrir nokkrum áratugum. Þá var oftast notuð ýsa, því þorskurinn var seldur á Bretlandsmarkað en á Mar notum við þorsk í þennan rétt.

Bleikjan minnir Íslendinga á sumarið og er borin fram með kartöflum og smjöri.

Reyktu ýsuna berum við fram eins og mamma eldaði hana, með rófum og kartöflum.

Íslenskur humar hefur lengi verið borinn fram með hvítlaukssmjöri. Við bætum humarkrafti, chili og skallotlauk í smjörið okkar. Fyrir um 40 árum var humar svo algengur á heimilum í sumum sjávarþorpum landsins að hann var borðaður með ristuðu brauði og kokteilsósu.

Þess vegna máttu endilega biðja um kokteilsósu með humrinum – hvort sem þú ólst upp við það eða langar einfaldlega að prófa.

Njótið matarins og velkomin á Mar.

Tommi Þórodds